Kosningablogg

Í dag kaus ég.

Ég er kominn með ágætis reynslu í að kjósa orðið, enda finnst mér ég vera að kjósa um eitthvað á hverju ári,

Á leiðinni frá kjörstað í dag, þá fór ég að hugsa, hugsa um að ég hef aldrei kosið besta kostinn, heldur bara þann skásta, því að mínu mati er ekki hægt að velja eitthvað “best” af einungis lélegum valkostum.

Ég hallast bara að því að það séu bara þrjótar og dusilmenni í stjórnmálum

Áfram lýðræði!

 

 

Ég og íshokkí! part 1

Jæja, best að reyna að sparka þessu aftur í gang, þarf að æfa mig í að skrifa!

Þeir sem þekkja mig eitthvað eða eiga samskipti við mig hvort sem það er í kjötheimum eða á stafræna vegu, ættu að vita að ég eyði dágóðum tíma í að ýmist horfa á hokkí eða lesa um hokkí, en, afhverju geri ég það?

Fyrir sirka einu og hálfu ári vissi ég varla hvað íshokkí væri, ég vissi vissulega að það væri hópíþrótt þar sem reynt er að koma pekki inn í mark andstæðingsins, og ég vissi líka að aðal deildin héti NHL, þegar ég fór til Montreal árið 2008 vissi ég ekki einusinni að þaðan væri mest legendary hokkí lið sögunar, hvað þá hvað liðið héti.

Ovechkin

Alexander Ovechkin

Áhugi minn á þessari stórskemmtilegu íþrótt hófst fyrir um einu og hálfu ári síðan, góðvinur minn hann Birkir Fjalar var frekar ný kominn úr skiptinámi í Kanada (sem er heimili íshokkís). Hann reyndi að vekja áhuga fólks á þessari íþrótt en fékk ekki mikið feedback. En það var ekki fyrr en tímabilið byrjaði aftur sem áhuginn fór að aukast, hann hóaði í fólk á Classic Rock til að horfa á leik, ég sló til, fínt að hitta nokkra félaga og detta í gott spjall og íþróttagláp. Leikurinn sem var þá í gangi var á milli óvinaliðana Pittsburgh Penguins og Philadelphia Flyers, og fóru Penguins held ég alveg örugglega með sigur af hólmi, ég man að Marc-Andre Fluery varði alveg fáránlega vel í þessum leik.

caps

Washington Capitals

Eftir þetta varð ég alveg hooked á íshokkí, ég fór í það að leita mér að liði til að halda með, Washington Capitals urðu fyrir valinu, því að ég heillaðist strax af færni galdramannsins Alexander Ovechkin. Við fórum á barinn sirka einusinni í viku til að horfa á NHL deildina, stundum vorum við bara 2-3 að horfa, stundum fór fjöldin alveg upp í tveggjastafa tölu. Áhuginn dreifðist á fleiri lúða, umræðurnar um hokkíið urðu nördalegri með hverri vikunni sem leið, fólk hafði áhuga á sitthvorum liðum, og rígur myndaðist milli fólks (allt í góðu samt). Í gegnum þetta allt kynntist ég nýju fólki, og samskipti okkar voru fyrst um sinn bara um íshokkí, sem mér finnst bara fínt. En svo fór maður að kynnast öðrum betur, fólk fór að bjóða hinum í hokkípartý heim til sín, góðar stundir og sweet dudes.

Hokkígláp á Classic Rock

Hokkígláp á Classic Rock

Það sem heillar mig svo við þetta er hvað þetta er ótrúlega hröð íþrótt og mikil harka í gangi, það eru ekki allir leikmennirnir liggjandi útum allt svell og velta sér um eins og þeir séu stórslasaðir, þú ert checkaður harkalega, þú vankast, þú skautar útaf og svo skellirðu þér á svellið í næstu skiptingu. Það er líka mjög erfitt að tefja leikinn í íshokkí, þar sem allir skauta á miljón kílómetra hraða og hef þú ert eitthvað að dóla þér einhverstaðar, þá ertu bara keyrður niður og pökkurinn tekinn af þér.

Mér finnst líka gaman að grúska í þessu því að það eru ekki margir í kringum mig með þetta sem áhugamál, mér finnst fínt að hafa eitthvað svona útaf fyrir mig og/eða afmarkaðann hóp, en samt er ég alltaf að tala um þetta. Í dag les ég fréttir á NHL fréttasíðunni á hverjum degi, skoða úrslit leikja næturinnar áður og velti gengi liðana fyrir mér. Og ég reyni að horfa á sirka 3 leiki í beinni útsendingu í viku, og þeir leikir byrja alltaf í kringum miðnætti, það er ein af ástæðunum afhverju ég vaki svona lengi.

Ég ætla að hætta þessu ranti núna, skrifa meira síðar.

Fór alla leið til Reykjavíkur í dag.

Ég var með tvö mission, annað var að fara í plötubúðir, og hitt var að ná í derhúfuna mína.

Derhúfumissionið er með helvíti langa sögu, s.s Mamma lét sauma Dr Pepper derhúfu fyrir mig í Bandaríkjunum í Janúar síðastliðinn, og ég er ekki vanur að nota derhúfur, en ég notaði hana öðru hvoru, en ég virtist hafa týnt henni einhverntíman í vor, ég hélt að hún væri bara einhverstaðar heima.

En svo var ég að flakka á netinu, eins og ég geri, og sá að vinir mínir væru taggaðir á mynd á Facebook, ég smellti á hana, og í bakgrunn var náungi með derhúfuna mína. Ég spurði eiganda myndarinnar hvort hann vissi hver þetta væri, svo virtist vera, hann gaf mér upp nafn hans og símanúmer. Ég leitaði hann uppi á Facebook og sagði honum alla söguna, og sagði að ég væri mjög til í að fá húfuna mína aftur, það þótti honum að sjálfsögðu bara sjálfsagt. Svo trassaði ég alltaf að hringja í hann þegar ég væri á leiðinni niður í bæ, ég sendi honum samt oft skeyti um að ég þyrfti að drífa mig að ná í hana. En, í dag, þá loksins lét ég verða að því, að hringja í hann og ná í húfuna, og mæltum við okkur mót á Ingólfstorgi. Hann sagði mér að hann hefði fundið húfuna í Listasafni Reykjavíkur á snaga þar, sem þýðir að ég hef líklegast gleymt henni þegar ég var í upptökum á Músíktilraunum. Ég gaf manninum Dr Pepper dós að launum og innilegar þakkir, enda er ég mjög þakklátur.

Takk Erling!

húfan fína

En á leiðinni í bæinn, þá keyrði ég framhjá bíl sem var stopp út í kanti, hélt ég að þar væri vinur minn hann Magnús Elvar, en þetta var ekki hann, en ég bauð honum nú samt aðstoð mína. Þá var þetta strákur á mínum aldri sem hafði orðið bensínlaus við hringtorg rétt við Korputorg. Honum vantaði að komast í banka svo að hann gæti náð í pening fyrir bensíni, ég reddaði stráknum, skutlaði honum í bankann og hinkraði meðan hann færi í bensínstöðina og fengi bensín á brúsa, svo skutlaði ég honum að bílnum aftur. Hann heimtaði að borga mér peninga, sem og heimsókn í hvalstöðina í hvalfirði til að sjá hvalskurð, ég þáði boðið og mun hann láta mig vita næst þegar hvalur verður dreginn að bryggju.

Ég spjallaði við útigangsmann að nafni Sigþór, hann var sprækur, bölvaði því reyndar að vera ekki löngu hættur að reykja, honum finnst Bubbi Morthens líka leiðinlegur því að hann er svo hrokafullur.

Á Lækjartorgi var dansviðburður í gangi, staldraði ég við að horfa á, þá byrjaði náungi að spjalla við mig á ensku, hann sagði mér að hann væri hluti af hópnum sem væru með þennan dans, og að þau væru trúboðar frá bandaríkjunum, hann spurði mig út í trúmál mín, ég sagði honum að ég væri trúleysingi, það virtist ekkert bögga hann, en það sem stuðaði hann var að ég hefði engar hugmyndir eða áhyggjur hvað gerist þegar ég dey, ég sagði honum að ég myndi að sjálfsögðu “lifa” á meðan fólk myndi eftir mér og að það væri nóg fyrir mig. Við ræddum líka um Íshokkí, það er alltaf stuð

Að lokum fór ég í Geisladiskabúð Valda og gramsaði þar í þónokkurn tíma, keypti tvo geisladiska af honum. My Game með Hanson Brothers og Old Ramon með Red House Painters. Ég hef hlustað mikið á Hanson Brothers undanfarið, en þeir spila skemmtilegt popppönk, og þeir syngja um íshokkí, enda eru þeir frá Kanada. En ég man ekki hvernig Red House Painters hljóma, mig minnir bara að Birkir hafi bent mér á þá um daginn.

Hanson Brothers - My Game

Hanson Brothers - My Game

Red House Painters - Ramon

Red House Painters - Ramon

Semsagt, góður dagur í Reykjavík.

Sumartónlist pt1

Þeir sem mig þekkja hafa eflaust tekið eftir því að ég elska tónlist, og flestir hafa líka tekið eftir því að ég elska sumarið. Á sumrin hlusta ég yfirleitt á aðeins öðruvísi tónlist en ég geri á veturnar.

Ég veit ekki hver formúlan er, þ.e hvað ákvarðar ég hlusta á á veturna og hinsvegar á sumrin. Það er tildæmis ein plata sem sumarið hefst ekki fyrr en ég er búinn að hlusta á, og er það “The Shape of Punk to Come” með Refused

Refused

Refused - The Shape of Punk to Come

Svo get ég bara hlustað á Piebald á sumrin, mér finnst einfaldlega bara rangt að hlusta á þá á veturna. Svona meðan ég man eftir er voða lítið íslenskt sem ég set í sumartónlistarflokkinn, en, ein hljómsveit hefur verið mjög sterk í sumrinu hjá mér, og eru það Morðingjarnir, Áfram Ísland platan er sterk þar. Uppáhalds lagið mitt af þeirri plötu þessa dagana er lagið “Ég er kominn heim”, sem er stórgóður popppönk hittari, skemmtilega hnyttinn texti með auðveldu singalong-i, sem er soldið krúsjal í svona sumartónlist.

Atli Morðingi

Atli Morðingi á góðum degi

Morðingjarnir – Ég er kominn heim

ÉG ER KOMINN HEIM

Fór upp í sveit
með alla fjölskylduna
í rólegheit
að skoða náttúruna
sofa á tjaldstæði
í ró og næði
það hefði verið æði

En það var grenjað grenjað grenjað
grenjað allan tímann tímann
þau náðu engu sambandi á símann símann
og ég sneri við
og keyrði aftur heim

Þar hef ég kaffikönnuna
flatskjáinn og fartölvuna
fjölskyldulífið allt í hnút
ég ætla aldrei aftur út

Því ég er kominn heim

Sólbrún og spræk
að grilla hamborgara
vaða í læk
og borða rabarbara
ég held nú ekki
ég mína þekki
hefði samt verið æði

En elsku pabbi pabbi
eigum við að sofa á þessum dýnum
það er kónguló í svefnpokanum mínum mínum
og ég sneri við
og keyrði aftur heim

Þar hef ég kaffikönnuna
flatskjáinn og fartölvuna
fjölskyldulífið allt í hnút
ég ætla aldrei aftur út

Því ég er kominn heim

Aðeins að viðra ljósmyndir sem ég var að öpplóda

Ég hef rosalega gaman af því að taka ljósmyndir, og þá sérstaklega á tónleikum, hér má líta á hljómsveitina Manslaughter.

Manslaughter2

Manslaughter á tónleikum 11.júní 2010

Manslaughter

Manslaughter á tónleikum 11.júní 2010

Manslaughter3

Manslaughter á tónleikum 11.júní 2010

hægt er að nálgast fleiri myndir eftir mig á Flickr

Hér má hlýða á Manslaughter

Letihaugur á hjólabretti

Ég stofnaði þetta blogg til að æfa mig að skrifa, en, þar sem ég er letihaugur, þá skrifaði ég bara einhverjar sjö færslur eða eitthvað, en ég ætla að bæta úr því

———-

Ég hef síðan ég var unglingur elskað hjólabretti, en helsti gallinn er sá að ég er svo fjandi lélegur á hjólabretti, ég næ aldrei að púlla nein trikk. En minn ástkæri yfirmaður minn, hún Sunna kynnti mér fyrir Longboards, sem eru awesome! Þau gera manni kleyft að krúsa mun meira en á venjulegum hjólabrettum, maður nær mun meiri hraða, sem gerir brettið að mun meira “farartæki” en hefðbundið hjólabretti.
Mitt bretti er úr Joel Tudor seríunni, keypti það á um 150 dollara í kanada. Það er 96 cm langt.

Svona bretti á ég

Svona bretti á ég

Ég hef mjög gaman af því að krúsa á því um borg og bý, fínt að fara á því í vinnuna, ég er innan við 10 mínútur að rúlla heimanfrá mér niðrí vinnu.
Svo er mikilvægt að hafa góða tónlist þegar maður er að renna sér, platan Milo Goes To Collage er í miklu uppáhaldi hjá mér þegar ég dreg fram brettið.

Descendents - Milo Goes to Collage

Descendents – I’m not a punk

Ég mun gera færslu um Descendents á næstunni

I’m not a punk, how can I be?
Show me the way to conformity
Try to be different but it’s always the same
End up playin’ someone else’s game

I’m just a square goin’ nowhere
I’m just a square goin’ nowhere

You used to walk by my side
Now you see me comin’ now you hide
I see you here I see you there
I can see that you don’t care

I’m just a square goin’ nowhere

Tónleikavídjó

Ég hef síðustu misseri verið að vinna í því að taka upp hardcore/pönk tónleika á vídjó, og er það liður í lokaverkefni mínu á fjölmiðlabrautinni. Mig langaði bara að deila því með ykkur sem ég er búinn að setja á vefinn.

endilega kíkið á þetta og njótið vel.

Muck @ Holan from Ægir Freyr Birgisson on Vimeo.

Dys – Bankanum þínum er sama um þig from Ægir Freyr Birgisson on Vimeo.

Gavin Portland @ Gráskallakastali from Ægir Freyr Birgisson on Vimeo.

The Deathmetal Supersquad from Ægir Freyr Birgisson on Vimeo.

Mig dreymdi skrýtinn draum

Það er ekki oft sem ég man drauma mína, en í nótt dreymdi mig frekar einkennilegan draum

Mig dreymdi að ég væri eitthvað að reyna að finna sjálfan mig, þótti ágætis hugmynd að fara til Alaska, rölti upp á fjallstopp í Anchorage. hitti þar tvær manneskjur, einn gaur sem var að hlusta á pönk, hann leyfði mér að hlusta, þá var hann að hlusta á alveg agalega útgáfu af DMSS lagi, hann sagði að þetta væri á einhverri Twin towers safnplötu.
En pían hinsvegar sat bara þarna, hún var að vinna hjá NOVA.
Svo fórum við pabbi að kaupa miða á Hróarskeldu
partýstuð

Í dag fékk ég póst

Ég hef ekki fengið handskrifaðan póst alveg heillengi, eða, jú, ég hef fengið smá miða með þegar ég hef verið að panta plötur að utan og slíkt. En Hrólfur sendi mér póst og ég fékk bréfið í dag, erindið var það að hann var að panta geisladisk úr distróinu mínu, og hann nennir ekki að fara í bankann til að millifæra pening, þannig að hann sendi mér seðil í pósti og lítið bréf með.

Bréf

Bréf frá Hrólfi litla

Seinasta bréfið sem ég man eftir að hafa fengið var frá föður mínum þegar ég átti afmæli einhverntíman, ég giska á að það hafi verið 1995, þá var hann nýfluttur til danmerkur. Í pakkanum var fótbolti merktur Brian Laudrup og fótboltasokkar. Sá bolti var notaður grimmt um stund, en svo, sauðurinn ég, týndi honum einhverstaðar í hverfinu. Ég hef hugsanlega gleymt honum á malarvellinum við Víðiteig, og einhverjir óprúttnir aðilar tekið hann.

Ég minnist þess að á sumrin eyddi ég öllum mínum stundum (það er samt ekki rétt, hékk harkalega í nintendo) á téðum fótboltavelli og í kring, þar sem að rólóinn er þar við hliðiná. Á vellinum spiluðum við fótbolta, fórum í stórfiskaleik, spiluðum handbolta, hafnabolta eða bara hvað sem er. Svo hinumegin við götuna lá hitaveitustokkurinn, þar söfnuðumst við oft saman, við einn ljósastaurinn, eftir kvöldmat og fórum í einakrónu eða einhverja aðra skemmtilega leiki. Á þeim árum var alltaf sól, allavegana á sumrin.

Bad Religion

Bad Religion

Bad Religion á tónleikum í Stokkhólmi, 2004

Bad Religion er hljómsveit sem ég er búinn að heyra um reglulega í mörgmörg ár, en af einhverjum ástæðum tjékkaði ég aldrei neitt á þeim fyrr en bara á seinasta ári, þá keypti ég mér Process of Belief plötuna í einhverjum útsökumarkaði. Strax við fyrstu hlustun þá byrjaði ég að elska þessa plötu. Ég er reyndar sekur um að hafa ekkert hlustað á hinar plötuarnar, en nú ætla ég að byrja á því, í tímaröð.

Platan kom út árið 2002, 20 árum eftir að þeir gáfu út sína fyrstu plötu sem ber nafnið How Could Hell Be Any Worse?. Eðal Kaliforníu popppönk plata þar sem eru einfaldar og hnitmiðaðar lagasmíðar, allt saman frekar útpælt, oft á tíðum eru lögin í sama dúr og Weezer, og ég kann að meta það mjög vel. Það eru mjög skemmtilegar sönglínur á plötuni, nokkuð af “voooóó” köflum, og er gaman að syngja með þessari plötu (það er eitthvað sem popppönk plötur verða að hafa) Þó að þetta sé Kaliforníusólskinspönk, þá er vel hægt að hlusta á þetta yfir vetrartímann.

        crossbuster

Þrátt fyrir bannmerki við krossinn hafa þeir víst aldrei gefið neitt út um að þeir séu eitthvað endilega á móti kristni, meira bara á móti trúarstofnunum almennt

Þó þessi hljómsveit hafi verið starfandi í rúmlega 20 ár þegar þeir gáfu þessa plötu út finnst mér ekki vera nein áberandi þreytumerki á henni. Allir upprunanlegu meðlimirnir fyrir utan trommarann spila á þessari plötu, og það gerðist síðast 1994.

hlustið á þetta og farið í góðan gír.

Bad Religion – Destined for Nothing

Who do you believe can put some meaning in your life
meaning in your life
meaning in your life
Who do you conceive to provide you guidance and light
guidance and light
guidance and light
Are they waiting for you in the by and by
Do you even have to try

Headed for eternity and destined for nothing
The future isn’t difficult to see
It’s easy to confuse grand design with life’s repercussions
Lament not your vanquished fantasy
It’s only destiny

Why do you consent to live in ignorance and fear
ignorance and fear
ignorance and fear
Ancient people succumbed to it can it happen here
can it happen here
can it happen here
Does it make you suffer cuz you have to die
Is it best to live a lie

Headed for eternity and destined for nothing
The future isn’t difficult to see
It’s easy to confuse grand design with life’s repercussions
Lament not your vanquished fantasy
It’s only destiny

Why can’t you see
there ain’t no destiny
for you and me
there ain’t no destiny
Why can’t you see
there ain’t no destiny
for you and me
there ain’t no destiny

Headed for eternity and destined for nothing
The future isn’t difficult to see
It’s easy to confuse grand design with life’s repercussions
Lament not your vanquished fantasy
It’s only destiny